Ég er með Floyd, reyndar ekki original heldur Licensed Floyd Rose. Ég þoldi þetta ekki fyrst, en er alveg búinn að venjast þessu og kann orðið á þetta. Getur verið vesen samt þegar verið er að skipta um strengi eða breyta stillingum. En málið er bara að velja eina stillingu og halda henni. Ég er með minn stilltan 2 hálftónum niður, s.s. DGCFAD, og droppa svo stundum efsta í C, s.s. drop-C stilling. Ég hef ekki tekið eftir neinu veseni við að stilla í drop-C og kvarta ekki. Persónulega finnst mér líka þægilegra að palm-mute-a með Floyd.