Hvernig er hann á litinn? Heritage Cherry, Ebony eða Natural Burst? Það er nú bara eðlilegt að það komi smá rispur við notkun. Sérstaklega að aftan ef þú er með belti eða eitthvað sem nuddast í hljóðfærið eða för eftir gítarnöglina framan á honum og svona. Er sjálfur með Gibson Les Paul Custom og það eru alveg rispur á honum en ekkert alvarlegar, bara svona á ysta yfirborðinu. Prófaðu að bóna gítarinn, það gæti hjálpað. Gibson gítarar rispast ekkert meira en aðrir gítarar, þetta fer bara eftir notkun og hvernig maður fer með hljóðfærið. Allir mínir gítarar eru með örlitlar rispur eftir notkun, samt fer ég mjög vel með þá…