Það eru til ýmsar gerðir af gítarpickupum og hver með sitt sérkenni. Það eru til humbuckerar sem gefa meira gain frá sér og eru oft taldir betri fyrir metal. Svo eru single coil sem eru aðeins rólegri og fást oft betri clean tónar úr þeim en það fer nú samt líka eftir gíturunum. Svo er til e-ð sem heitir active og passive pickupar, veit ekki alveg hvernig það er. En hérna eru nokkrar síður sem þú getur farið á til að leita þér upplýsinga:
www.harmony-central.com: allt um gítargræjur
www.guitargeek.com: gítarnördar að fræða hver annan. Farðu á spjallið og leitaðu að þráðum um pickupa.
www.seymourduncan.com: einn stærsti pickupa-framleiðandinn á markaðnum.
Vona að þetta hjálpi e-ð. Annars finnurðu örugglega e-ð á þessum síðum.