Reyndu að fara ekki undir 100 wött, þú þarft svona fjórum sinnum meira en gítarleikarinn til að heyra vel í þér yfir trommur og tvo gítara. Ég myndi mæla með combo (magnara og hátalara í einum kassa) fyrst þú ert að byrja, þú getur farið út í aðskildar einingar þegar þú veist betur hvað þú vilt. Leitaðu svolítið að notuðum magnörum, það gerir fáránlegan verðmun hvort hann er nýr eða notaður, og reyndu frekar að fá solid-state magnara heldur en lampa. Það er miklu meira viðhald í kring um lampamagnarana.
Eins og hinn sagði, Ampeg og Peavey. Tékkaðu líka á Hartke, EBS, Fender, SWR og Yorkville, þú getur fengið allar þessar tegundir hér á landi.<br><br>Drink mate! Get the noise!
Drink mate! Get the noise!