Það gæti verið svolítið long shot að fá notaðan vinstri handar bassa á Íslandi. Í staðinn getur þú annað hvort (The Jimi Hendrix Way [TM]) keypt venjulegan og snúið strengjunum, þ.e. í staðinn fyrir að stilla hann EADG þá stilliru hann GDAE. Síðan snýrðu bassanum bara “öfugt”. Þú þarft bara að víkka aðeins holurnar sem strengirnir fara í efst á hálsinum.
Eða (The Billy Corgan Way [TM]) keypt venjulegan bassa og spilað á hann þannig. Ég gerði það, ég er örvhentur, það skiptir mig engu máli. Ef þú spáir í því þá er meira vit í að gera þetta þannig, þá ertu að nota sterkari hendina í að velja nóturnar sem er miklu erfiðara fyrir hendurnar.
Prufaðu að spila á venjulegan bassa og sjáðu hvað þér finnst.<br><br>Drink mate! Get the noise!
Drink mate! Get the noise!