Ég var einmitt að lesa smá <a href="
http://www.djnoble.demon.co.uk/ints/LeftyMatters.html">ritgerð</a> (ef þessi link virkar ekki þá er url hérna:
http://www.djnoble.demon.co.uk/ints/LeftyMatters.html )um örfhenta gítarleikara og þar er talað mikið um Jimi Hendrix. Þá aðallega að hann notaði rétthenta gítara og sneri strengjunum við til að geta spilað örfhent.
Hann gat að vísu spilað á rétthentan gítar án þess að snúa strengjunum við eins og er sagt frá í þessari ritgerð þá var hann í gítarbúð þar sem engir örfhentir gítarar voru til þá tók hann rétthentan gítar snéri honum við og spilaði Little Wing og menn göptu af undrun sem voru þar inni.
Þannig að þótt hann spilaði aðalega á rétthenta gítara og snéri strengjunum við þá gat hann alveg spilað án þess að snúa strengjunum við. Pabbi hans var virkilega slæmur við hann þegar hann var að læra á gítarinn og spilaði örfhent að aðeins djöflar og þvíumlíkt spiluðu örfhent. En um leið og hann fór út úr húsi þá flippaði Jimi gítarinum strax við og byrjaði að spila örfhent. :)
Ég er örfhentur og spila örfhent. Jú, það er erfiðara að finna sér góðann örfhentann gítar hér á landi og þeir kosta eylítið meira en sama gerð af rétthentum. Ég fór til bandaríkjana að kaupa mér gítar. Alveg síðan ég man eftir mér að stelast í gítarinn hjá frænda mínum (sem er rétthentur) þá snéri ég honum alltaf við og spilaði örfhent.
Ég mæli bara með því að þú gerir það sem þér finst best og þægilegast. Að spila og eða læra á gítar á ekkert að vera að ganga gegnum eitthvað helvíti. Þetta á að vera gaman. :)
Ég keypti mér bara meðal kassagítar til að fara með í útilegur svo ég er ekkert að gráta það að hann rispist smá. Bara ekta útilegu gítar.
Það helsta sem maður þarf að gera þegar maður kaupir rétthentann gítar er að verða sér út um nýtt “nut” (þetta hvíta efst á hálsinum). Því þegar maður setur strengi í hann þá situr hái E í djúpa farinu þar sem lái E var og þá myndast oft suð því hái E situr það nálægt böndunum. Á kassagíturum er oft hægt að snúa líka við plastinu á brúnni (bridge).
</rant><br><br>CS: Steingeit
AQ: [MBI]Steingeit
<a href="
http://www.simnet.is/steingeit/aq/“>Action Quake Hjálpin</a>
<img scr=”
http://simnet.is/steingeit/images/rune_thumb.jpg"