Ég er ekki 100& viss á þessu, en ég held að maður geti enablað Slow-Motion á sérstökum punktum, t.d. þegar að maður kemur ræðst inn í herbergi með mörgum óvinum. Þá getur maður séð allt 5 sinnum hægara og getur þannig tekið ákvarðanir mun hraðar í samræmi við óvinina. Þú gætir t.d. séð ef að óvinur er að fara að draga upp byssuna og skotið hann á undan, eða tekið þér tíma til þess að skjóta þrjá mafíósa í einu á meðan að þú rúllar þér undir borð eða bakvið vegg!
Og það var annað sem að vakti áhuga minn í þessari grein: Það eru engin Medikit! Í staðinn geut maður fundið verkjastillandi töflur og lyf (Pain-killers) sem að hjálpa Max að standast sársaukann af síðustu haglabyssuhríðinni sinni.
Þessi leikur verður frábær, sérstaklega ef að editorinn verður eins einfaldur og fullkominn og sagt er!