Það fyrsta sem ég hugsaði var: “jeii.. þá fara kannski þessir þursar á E að hætta að spamma bridge í crossover2”(TFC)
En svo fór ég aðeins að hugsa þetta útfrá dod. Þeir sem spila dod eru margir(sumir/nokkrir) “uppaldir” í netspilun á Simnet Mania serverunum í cs, og eru þar af leiðandi fraghórur frá því að þeir byrjuðu að munda músina í þeim hugleiðingum að murka lífið úr “félugum sínum”.
Þetta fólk gæti ekki verið meira sama þótt þú hafir kastað flottri grensu þar sem 2-3 óvinir leynast, heldur hlaupa einsog galnir í átt að sprengjunni vitandi það að þeir missa ekki eina einustu orku. Þeim er allveg sama þótt þú drepist kannski.
Það sem ég var að pæla, en er kannski ekki búinn að kynna mér málið, er hvort það sé ekki hægt að minnka skaðan sem mar gefur tm og hafa hann 50% en mar sjálfur missir líka 50%. Þá hugsuðu fraghórurnar sig kannski 2svar um áður en þeir hlaupa einsog hauslausar hænur í leit að nokkrum fröggum. (Hauslausr hænur finna að vísu ekki mikið)
[En ég er nú kannski farinn að rugla aðeins of mikið núna]
<br><br>kveðja, XerXes