Jæja kallinn, þú heldur það já?
EF þú vissir eitthvað um mig eða mína hagi, þá myndir þú vita að þó ég æsi mig með 6 línum á huga þá er ég einhver rólegasti og hæglátasti maður sem þú hefðir kynnst.
Þú hefur ENGANN rétt á að ráðast á mína persónu með svona yfirlýsingum né heldur ætti svona komment yfirleitt að leyfast á huga .. sem ég fer reyndar að fallast á að sé gersamlega stjórnlaust amk. hérna á þessum svokallaða HL svæði.
Miðað við nickið (stigafjölda) þitt hérna á huga ertu annað hvort nýbyrjaður að lesa greinar hérna, eða þá að þú ert einn af þeim sem alltaf eru að skrá sig upp á nýtt til þess kannski að fela slóð sína eða raunverulegt ID.
Ég hef ávalt eins og menn vita ALLTAF kallað mig SMOOOTH og ef menn eru ekki meiri karlmenn eða stærri sálir en svo, að ráðast á menn í krafti nafnleyndar (sem reyndar er í raun ávalt hérna) þá þarf kannski að fara að endurskoða reglurnar og innskráningarkerfið hérna.
Með von um að þú þroskist
Kv. SMOOOTH
p.s. “EF” þú ert sá sem hefur áreitt mig í gegnum árin fyrir það eitt að vera ég (við vitum þá báðir hvern átt er við) þá vill ég enn og aftur benda þér á að slaka aðeins á og athuga hvort að það sé ekki líf fyrir utan tölvuna, jafnvel fara út úr húsi eða að lesa bækur sem þroska sálina og auðga andann