Eins og flestir vita þá er admin ekki í gangi útaf laggvandamáli á de_Maniu.
Þegar estate hefur komið og serwerinn hefur tæmst þá hef ég einstaka sinnum notað rcon say til að spyrja fjöldan hvort hann vilji cbble eða dust.
Ef 1 segir nei þá skipti ég ekki og tek það skýrt fram, ef enginn mótmælir þá skipti ég. Ef menn aftur á móti nenna ekki að skrifa nei þá er það þeirra vandamál, og ég tek það fram að sá eini sem hefur verið að skipta um möp er ég, svo ef menn vilja kvarta þá skal sú kvörtun vera undan HUGO.
Annað er og það tek ég skýrt fram hér og nú að ef einhver er með kjaft, ásakanir eða leiðindi af öðrum toga þá fær hann KICK og er ekkert gert þar uppá milli vina eða nafna.
Nú segja margir “hvað er hann að rífa sig þetta gimp” en jú þetta er bara eftir reglum sem Zlave* setti mér og ég fer eftir í einu og öllu, nú segja öruglega margir líka *sleikj sleikj*, já ég hef tekið eftir því að sumum mislíkar við mig eftir að aðeins 2 urðu með rcon.
Ég mun aldrei misnota rcon skipun eða admin skipun en menn sjá stundum þegar ég hef slappað afk gaura eða 1 terra sem er að campa í 1-1,5 mín og tefja allan leikinn, þetta geri ég af einni ástæðu og hún er að láta menn sjá að það sé eftirlit inná serwernum, og camp er kannski liðið á 16 manna æfingarserwerum en ekki MANIU það hljóta allir að sjá af nafninu einu saman.
En eitt get ég sagt ykkur að þegar Manian er full og engin að ásaka, rífa kjaft eða með leiðindi þá er hvergi meira fun og fjör en einmitt þar.
HUGO*