Jeje, ZtorM þú ert ágætur og GGRN SUX!
En þrátt fyrir að þú sért ágætur geturðu verið óttalegt kjánagrey: 4 til 5 toppleikmenn farnir í önnur klön og maður spyr í sakleysi sínu: Er MurK að deyja? Náttúrlega af einskærri umhyggju.
Ef ég vissi ekki betur, að þú sért þessi góði drengur lengst inn við beinið, þá héldi ég að þú værir stælóttur leiðindagaur. Og ég myndi spyrja: Af hverju geturðu ekki bara svarað spurningunni merkikertið þitt? Er þetta eitthvað feimnismál? Þú lætur einsog Árni Johnsen - og kannski ekki leiðum að líkjast í þínu tilfelli. En af því að ég veit að þú ert enn undir illum áhrifum frá TomB, og þetta ert ekki “þú sjálfur” sem skrifar heldur unglingurinn sem á eftir að vaxa og þroskast frá þessum leiðindum, þá sleppi ég því.
Varðandi spurningu þína þá er allt í himnalagi hjá GGRN, mikill uppgangur og gaman gaman. Ef einhverjir skemmtilegir MurK-arar - og athugaðu, þá meina ég skemmtilegir MurK-arar sem eru ekki með hausinn uppí rassgatinu á sér og taka sig hæfilega hátíðlega - eru að leita að nýju klani: Þá endilega bentu þeim á að hafa samband. Þó að við séum ekki í neinu hallæri, síður en svo, þá má lengi á sig blómum bæta.
Með bestu kveðju og von um að þitt súra geð fari að lagast og þinn innri maður að blómstra,<br><br><a href="
http://www.ggrn.org">[GGRN]</a>Rooste