Hei jó… mér finnzt umræðan hérna á korkunum soldið leiðinleg og ef ég ákveðið að gera eitthvað í málinu… kommonn strákar komið með eitthver m4d warstories af ykkur eða öðrum og deilið með…

Ég skal meira að segja byrja……
Okei, eftirfarandi texta ber að lesa með rödd alveg einzog gaurinn í Rottweiler sem talar í þarna Satt Íslenskt Sakamál eða eitthvað, þarna… Rottweiler telja fjölda frá 6 upp í nokkra tugi og svo fram vegis…


Hefur heimurinn orðið var við nokkra stórhættulega einstaklinga innan DoD samfélagsins, sem eru í hinni banvænni glæpaklíku sem gengur undir nafni [-=Knife=-]. Alltaf þegar einhver af þeim stígur skrefi inn á serverana fyllast aðrir leikmenn örvæntingu og ýmsir flýja af hólmi…

Fyrst ber að nefna [-=Knife=-]Zappy, ef hann kemst að þér með kutan á lofti skaltu ekki búast við að sleppa lifandi í burtu með BÆÐI augun… Ósjaldan er hann sveiflandi hnífnum sínum í andlit annarra manna og kvenna, því hann sér engan mun á þeim er hann mundar kuta af mikilli snilli…

Númer tvö, heiðursfélagi í hinu sístækkandi glæpagengi, öflugur mófó sem er hnífar fólk hvort sem það er með MachineGun, Sniper-Riffil eða bara auma skóflu, þessi maður þarf enga kynningu, sjúkur í hausnum og ruglaður í sköflungnum… þetta er [-=Knife=-]Jeebus, einnig þekktur sem [-=HB=-]Cheerleadereater en það er bara dulnefni… passið ykkur, hann gæti verið á serverinum akkúrat núna.

Númer þrjú, og einnig þriðji meðlimurinn í hinu ósigraða gengi [-=Knife=-]Millah!!. Þó að hann kjósi að kalla sig Miller… einzog mér sé ekki sama, hnífandi fólk í klessu með auka-kuta í hinni hendinni. Myrðandi fólk hraðar en ferill kryddpíana féll niður í alsgleymi…

Og svo seinasti, sá öflugasti, kennarinn og prófessorinn sjálfur… [-=Knife=-]Fearz, þegar hann stekkur inn á serverana er það ekki bara kuti sem fer beint í hjartað á óvinum heldur einnig ótti, og þaðan kemur nafnið. Fullur, Meðvitundarlaus, Sofandi, Spilandi, Ríðandi, Talandi, Í skurðaðgerð… skiptir engu máli, hann hnífar hvað sem er, hvenær sem er, hvar sem er… skítsama hvað það er, ekki furða að öll klönin í landinu hafa beðið hann um inngöngu, því sá sem er ekki vinur hanz er steindauður.

Okei, þá er kynningin búinn. Nú kemur ein sagan mar… af mér og Zappy.

Þetta var í borðinu þar sem ef mar kappar flaggið á brúnni þá færist spawn-pointið mannz framar… okei, við vorum allies og einhver ómerkilegur axis fáviti var að hlaupa upp virkisveggin okkar megin… hlupum við báðir á eftir honum og var hann bakkandi, sá brjálæðis-glampan í augum okkar og fór að gráta meðan hann var að reloada, hann hélt að hann myndi sleppa… en svo var ekki, ég og Zappy komust í hann og stungum hann nokkrum sinnum en var það Zappy sem hirti líf hans og þar með sáluna í leiðinni að lokum.

Blóðþorsta mínum hafði ekki verið fullnægt, ég lít í kringum og sé tvo Axis Grenadiera vera að hlaupa yfir brúnna mína… BRÚNNA MÍNA!!!!!!!, ég fyllist bræði og það rýkur úr eyrunum, það myndi taka allt of langan tíma að hlaupa niður svo ég stekk fram af.. ofan á annan gaurinn og geri svona “instand brain surgery” á staðnum… gaurinn fyrir framan lítur við og sér hryllingin frýs í hálfa sekúndu og það dugar fyrir mig, enda er ég sneggri en skugginn og munda kutan af mikilli hæfni og kötta úr honum annað augað… þá fær hann að grenja, svo þegar ég hef lokið mér af að drekka úr honum allt blóðið lít ég við og þá er sniper-kelling með mig í miðinu og skýtur á mig (héðan af fer allt í haugalygi, sniperinn drap mig) en hittir ekki auminginn.

Ég sé hann þarna í 200 metra fjarlægð upp í einhverjum turni, það stoppar mig ekki, ég hleyp af stað og hnífa 4 manns á leiðinni, klifra upp alla stiganna kem að honum, þar sem hann er búinn að loka sig af með 4 machine-guns kellingar til að vernda sig… ég charge-a áfram og dodge-a kúlurnar þeirra og sting kuta mínum í hvern og einn þeirra og borða þá svo… en ég hef ekki lokið mér af og labba upp að þessum fokkings aumingja sem er nú búinn að pissa á sig. Hann grátbiður um miskunn, en ég er enn með blóðið í augunum og mig langar ekki í neitt annað en að drepa a.m.k einn í viðbót… svo ég ríf upp minn feita kuta og sting honum beint í ennið á honum og plokka svo úr honum auginn með handafli og hræki upp í heilan á honum og kasta líkinu út í sjó… <br><br>{iwrb - P} - Fears