Já ég vill ekkert vera eftirbátur hinna í claninu og vill þakka fyrir þessi ár sem við höfum verið að scrimma við hina ýmsu ættbálka (klön) þar sem úrslit hafa verið svona upp og ofan.
Samt vill ég sérstaklega þakka tveimur ættbálkum fyrir tvö mjög skemmtileg ættbálkastríð, en það eru XoR og .Hate..
En í matchi við hið fyrrnefnda á ICSN mótinu var ég með rcon og restartaði næstum kláruðu matchi óvart en þeir XoR-menn voru samt ekkert nema góðvildin uppmáluð og gerðu ekkert stórmál (reyndar ekkert) úr þessu.
Hitt ættbálkastríðið sem er mér mjög minnisstætt var á móti .Hate. á einum af mínu fyrstu skjálftum þegar það var ekki komið á Maxrounds kerfi heldur timelimit, og vorum við þá að keppa á móti einu af þrem .Hate. liðunum og vorum að mig minnir einu roundi undir og um hálf mín eftir (í Militia), við náðum að drepa alla Hate-arana, nema Dreitil sem flúði í sewer og við 4-5 á eftir honum (hann var að flýja frá Terr að Ct spawn og var í seweri), 2 að elta hann í sewer og 2 biðu þar sem hann hinumegin við netið þar sem hann átti að koma upp. Sek liðu og þegar um 2 sek eru eftir er Dreitill að fara upp úr seweri Ct megin og við 2 sem erum hinumegin sjáum í hausinn á honum en þá kemur scoretable og þeir vinna og komust í efsta sæti riðilsins en við sátum eftir (vantaði bara jafntefli eða win til að komast áfram í úrslit).
Síðan vill ég þakka þeim sem hafa verið góðir við okkur/mig gegnum tíðina (óli og jói aka Spartakus og Knifah (nei jói ég unbanna þig ekki á private rásinni)) og allir hinir sem ég er að gleyma.
Sjáumst bara í nærsta Thurs eða á skjálfta :)
p.s. Daywalker, jú það var smá lægð þarna á tímabili, hættum samt ekki og komum bara sterkari til baka eftir sumrið :)
p.p.s: sonur, held að það verði ekki fyllerí í kvöld/nótt þar sem við erum allir á skólaaldri og skóli á morgun en það er aldrei að vita nema maður noti næsta tækifæri sem gefst til að fagna vel ;)
<br><br>——
Kv.
Steini
<img src="
http://www.freakygamers.com/smilies/s2/contrib/fk/elf.gif“ border=”0“ alt=”"