Hef farið í gegnum nokkrar mýs yfir ævina og verð að biðja þig um að halda þér frá habu, amk í mínu tilviki entist hún ekki í 3 mánuði (og ég er ekki gæinn sem neglir músinni í veggi eða e-ð slíkt).
Mx518 og/eða Steelseries Ikari Laser eru þær sem að standa uppúr hjá mér. 518 músin entist mér í 6 ár áður en hún söng sitt síðasta og eftir að hafa skitið á mig með habu kaupunum ákvað ég að prufa eitthvað annað en microsoft / razer.
Ég fíla Ikari músina mjög vel, fellur mjög vel í (minn) lófa og ekkert vesen, bara plug & play er líka með ofna snúru, ekki plast.