Heyrðu, ég er með sama fjandans vandamál. Ég er með 2 mbita tengingu hjá margmidlun, og með reglulegu millibili þá fer hraði tengingunnar allt niður í 200 kb. Ég er fáránlega oft með yfir 200-300 í ping hjá margmidlun, stöðugt. Ég er gjörsamlega búinn að fá nóg af þessu kjaftæði, erum að borga 6.000 kall á mánuði fyrir þetta rusl.Maður hringir í þá á 2 daga fresti að kvarta og þeir segja manni að gera þetta og gera hitt, og koma sökinni á notandann. Ég er búinn að breyta um router, setja allt aftur upp, tékka á vírusum og trojan drasli og það er ekkert að tölvunni, enda massatalva. Það er ótrúlegt að þurfa að borga þennan pening fyrir þetta rusl, og þeir segja að það sé ekkert að hjá þeim. Gjörsamlega ófyrigefanlegt.