Jæja miRo snáði,
Ég er nú búinn að þaga vel yfir því sem búið er að skrifa, en ég held að þú hafir ekki efni á því að koma með svona korka hérna.
Númer eitt tvö og þrjú þá var ég alldrei á leiðinni að taka þetta kerfi sem ég gerði fyrir ykkur niður, þó að biggi hafi sagt það í reyði, þá var ég samt búinn að láta hann vita af því að ég myndi ekki gera það, og plús það þið hefðuð allveg geta haft þetta mót í gangi án þess að nota þetta kerfi, því hefði bara seinkað ennþá meira, en það sem seven gerðu fyrir ykkur á þessu móti á að vera litið á, það voru menn þarna sem gerðu mótið að veruleika t.d hlynur held ég að hann heiti, gaulzi og haddi. Og þeir eiga allveg skilið sitt kredit og vill bara nota tækifærið og segja takk við þá fyrir hönd seven, því hálft samfélagið hefði örugglega hætt í cs ef þetta hefði floppað.
En að sjálfsögu meiga seven taka kredit, því það sem við gerðum setti punktana yfir i-ið á því sem þeir gerðu, þetta mót hefði alldrei klárast á sunnudeginum hefðum við ekki aðstoðað ykkur, og miRo maðurinn sem pakkaði tölvunni heim á laugardeginum og kallar sig mótshaldara er að skrifa kort á huga um hvað við eigum ekki skilið neitt kredit.
Þegar ég spilaði fyrir hönd seven á móti von var ég skráður á mótið, en ég var ekki skráður í cs né cod, þar að leiðandi var ég ólöglegur, og við sættum okkur allveg við það fyrir utan þessar 5 mínotur í reiði sem helgi tók á strákinn á admin borðinu, það er lítið meðan við öskrin sem þú tókst á mig eftir að ég sagði við admina að mér væri sama og við ættluðum ekki að gera neitt mál útur þessu, en svo kom mreth uppað borðinu okkar og sagði okkur að við fengum sigur úta það ég gerði kerfið fyrir ykkur, mér fanst það ekki sangjarnt í garð VON en ég var nú ekkert að fara gera meira vesen úr þessu, og svo kemur þú og segir að forfeittið standi, og þar sprungu biggi og helgi, þið getið bara kennt ykkur sjálfum um það.
Ef þú ert að reyna að rökræða það að þetta mót hafi verið vel rekið þá skaltu nú heldur betur vera komin með skófluna í endi og byrja grafa þína eigin gröf.
Fyrir utan það að enginn var með neitt á hreynu af þessum adminum, ef maður spurði 3 admina að spurningu fékk maður 3 mismunandi svör, þá voru þeir ekki með skárri heðun en seven, tökum nokkur dæmi.
Föstudagsnótt kl 5:00, Adminar á Kísildal Open fara saman í scrimm á móti pugi, og taka uppá því að ÖSKRA í hátalarakerfið vitandi að annað fólk var sofandi hluti eins og “DJÖFULL HNÍFAÐI ÉG ÞIG”, “HVAÐA MAP VILJIÐI TAKA” og fleira.
Laugardagsnótt kl 02:00, Adminar á Kísildal Open taka uppá því að kveikja ljósinn og láta einhvern mann hlaupa í kringum svellið á brjóstarhaldara vitandi það að annað fólk var að keppa og var að scrimma.
Þetta eru nokkur dæmi, áður en þú ferð að rakka hegðun annara, skaltu byrja á því að afsaka hegðun starfsfólks þíns.
Ég nenni ekki að gera stórt vesen úr þessu, það gerir bara illt verra, og þetta er líka held ég mál sem þú getur ekki unnið.
Eigum við ekki bara að fá admin til að eyða þessum kork og gleyma þessu.
seven william