Sælir allir
Ég byrjaði aðeins að spila DOD þegar hann var að koma fyrst út en svo hætti ég og sneri mér meira að CS. Ástæðan var sú að ég hef ekki endalausan tíma til að spila tölvuleiki og ég varð að velja. Jæja nóg af afsökunum, allavega um daginn ákvað ég svo að fara að spila DOD meira aftur og ég náði í nýjustu uppfærsluna og fór inn á skjálfta 12 (held ég) eða allavega skjálfta DOD serverinn. Þar var ég gjörsamlega hakkaður í spað, ég spilaði 2 borð og náði 1 killi samtals.

Spurningin er veit einhver um góðan byrjenda server fyrir mig?

-[SkinEffEct]-