Þessi flatskjár sem þú ert að vísa á með línknum er ekki góður. Hann er 8 ms respons sem er ekki gott. 4 ms er fínt og 2 ms er ennþá betra. Það sem margir eru að tala um varðandi Hz í túbuskjám á ekki við flatskjái.
100 Hz túbuskjár getur framkallað 100 fps, en flatskjáir eru ekki mældir í Hz. Það gilda allt önnur lögmál með þá.
Finndu þér flatskjá sem er 2 ms frá grey-to-grey og þú ert í góðum málum.