Jæja mig langar bara til að fá smá útrás eftir að hafa fengið slæma útreið hjá thursaclani á FF server, málið er að sumir eru greinilega ekki nógu þroskaðir til að spila á ff serverum sama hversu góðir þeir eru. Dæmi sem ég var vitni af… ég tek það fram að það var ekki ég sem lenti í þessu. Einhver newbie var að spila á ff server og það var greinilegt að hann vissi ekki af FF hann gerðist því sekur um það að skjóta teammate í byrjun á einu roundinu rétt eftir að fórnalambið var búið að kaupa sér vopn, sá sem var drepinn var skiljanlega og réttilega reiður en málið er að þegar svona gerist ber mönnum að tala við einstakling áður en þeir hefna sín, það gerði þessi ekki, hann var augljóslega á lani með clan félaga sínum því clan félaginn spurði newbieinn afhverju hann hafði skotið hann, newbieinn svaraði “sorry ég vissi ekki að ég gæti skotið menn úr mínu liði”, þá tók clan félaginn sig til og skaut newbieinn.
Þetta var bara byrjunin á þursaskapnum því nú blandaði einhver altnicker sér í málið og fór að spurja hvað clanfélaginn hafi verið að hugsa en hann passaði sig þó á því að vera ekki móðgandi, á meðan altnickerinn var að fá svar útúr clanfélaganum kom vinur hans sem var drepinn í byrjun og skaut altnickarann í hausinn og svo newbie-inn. Ég hætti svo að spá í þetta en tók samt screenshot af consolinu þannig ég ætti þetta allt saman og gæti sýnt fram á að þetta clan var í 100% órétti þarna og ég tek hiklaust afstöðu með newbie-inum.
Mig langar núna að vita hvernig dumpa ég logginum?
Því það er erfiðara en andskotinn að taka screenshot af consolinu alltaf því það færist niður um leið og það kemur nýr texti =)