Er þetta bara ég eða kemst enginn á ircið í gegnum irc.simnet.is núna ?? og líka ég var með cwbot að lýsa csleik gegnum ircið og svo núna er ég bannaður á irc.isnet/ircnet.is fyrir ólöglegan bot
Ég er á ircinu…. allt í lagi hjá mér! Þetta ADSL er eitthvað að kúka á sig núna því simnet.is var að uppfæra eitthvað og allir eru að detta þess vegna út af ircinu!
sko ég sendi simnet póst um þettað og hér er svarið alveg ócuttað
Það sem er að gerast hér er að þú ert ekki með fasta ip tölu og þá færðu úthlutaðri fake ip tölu sem þú ásamt nokrum öðrum nota sem er adsl3-***.du.simnet.is og þegar 3 af þessum öðrum eru búnir að tengjast inná ircið þá leyfir ircið ekki fleyrri tengingar á sömu IP tölu. Það gæti hjálpað þér að notast við irc.simnet.is í staðan fyrir irc.ircnet.is þar sem við stjórnum þeim server og við erum búinn að hleipa 7 á sömu ip þar inn. Ég vona að þetta hjálpi þér. Að fá sér fasta IP tölu leysir þetta vandamál hún kostar að vísu 500kr á mánuði en þá er þetta vandamál úr söguni.
Ég á líka við þetta hvimleiða vandamál að stríða. Það kemur alltaf upp “too many host connections (local)” Hvernig fer maður þá eiginlega að því að tengjast irc.simnet.is??? getur einhver sagt mér það.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..