Undanfarið hef ég verið beittur gríðarlegri ósanngirni og óréttlæti þ.e ég er sakaður um að svindla af útlendingunum. Mér finnst það bara fáránlegt að ef manni má ekki ganga vel eða einfaldlega vera góður í DoD þá þarf maður að vera að svindla. Ég sjálfur hata svindlara og svindla aldrei sjálfur. Ég held hreinlega að íslendingar yfir höfuð séu bara mjög góðir í CS og DoD miðað við höfðatölu.
p.s kannski er ágætt að vera sakaður um svindl annað slagið þá veit ég allavega að ég er að gera góða hluti.
p.p.s DoD up your life.