Þessi könnun opnaði allavega augu mín fyrir því hvað Hugi er yfirfullur af beiskum notendum. Ég gæti verið þar í flokki eða ekki, sjálfur kýs ég að flokka mig ekki í þann hóp. Þú mátt hinsvegar flokka mig í hvaða hóp sem er, það er bara réttlátt.
Ef þú hefur ekki tekið eftir því, þá eru korkarnir mínir grín til að starta umræðum þegar ég hef ekkert að gera. Replyin mín eru oftast til að hræra aðeins í hausum á fólki og reyna að fá það til að svara mér og eyða ennþá meiri tíma í að rífast við mig útaf nákvæmlega engu sem skiptir nokkru sköpuðu máli. (Sbr. “félagi ;)” … :þ)
En þar sem ég er búinn að svara þér í þesum tón, þá gæti ég eins hætt því og snúið mér að trommuleiknum. Þér ætti að líka þessi tillaga mín ef ég þekki online persónu þína rétt, Fallen.
Ég hefði hinsvegar ekkert á móti því að hitta þig einhverntímann og spjalla á rólegu nótunum um hvað við höfum báðir að segja um mismunandi skoðanir okkar á öllum hlutum. Ég er hinsvegar ekki jafn viss um að þér líki sú tillaga.