og já, þetta dc++ samfélag var látið í friði í þetta langan tíma án áreitis, svo kemur þetta félag “SMÁÍS” til sögunnar og umbreytir reglum og framkvæmd í sambandi við löggæslu á netinu.
Man eftir því hvað það varð allt brjálað. En fólk virðist ekki gera sér grein fyrir því að þeir hafi verið að fremja, tjah, frekar alvarlegt lögbrot allan þennan tíma sem það var að ná í nýjustu myndirnar mánuðum áður en að þær komu út.
Þú hefur engann rétt til að kvarta yfir þessu, þakkaðu fyrir að sektirnar og framsókn þessarar týpu yfirvalda sé ekki jafn langt komin og t.d. í BNA þar sem venjulegt fólk sem nýtir sér svona tækni er sektað fyrir milljónir dollara.
Þó að ég sé að hrauna svona gífurlega yfir þetta, þá er ég ekki beint á löglegu hliðinni í þessum málum, einfaldlega *pirrandi* þegar fólk er svona short-sighted að hugsa ekki aðeins framfyrir sitt eigið nef í svona málum áður en að það fer að gera, tjah, nákvæmlega svona vælukjóaþræði sem er allt of mikið til af nú þegar.
sjoo