Góðan dag. Ég fékk mér um daginn ThinkPad og skjákortið í henni er ATi Radeon x300 64mb.
Það kom mér skemmtilega á óvart hversu vel þetta skjákort ræður við leika! ;)
Anyway..
Ég fór aðeins að skoða skjákortsklukkurnar og sá
Core clock: 305mhz
Mem clock: 240mhz
Á ekki memory klukkan að vera aðeins hærri? :S
T.d. á gamla skjákortinu var
Core clock: 245mhz
Mem clock: 440mhz
Svo hef ég verið að skoða önnur skjákort og þá er minnisklukkan alltaf á 2x meiri hraða en kjarnaklukkan(core).
Mér var hinsvegar sagt að það skiptir ekki máli hversu hratt minnisklukkan gengur en samt langar mig að vita þetta.
;)