Ef við ætlum að kalla okkur orginal manneskjur þá myndum við ganga nakin og kúka þar sem við stæðum ef okkur yrði mál(eins og smákrakkar, þau eru nú orginal).
Það er bara vitleysa að ætlast til af öllum að spila CS eins og hann kemur úr fyrstu ‘instalation’.
Hinsvegar að banna allt annað en ‘Radio’ og ‘Buy’ script er ekki dómur um að ‘allt annað’ er svindl. Þetta er bara spurning um skýrar regglur og þær eru einfaldar í framkvæmd og eftirliti.
Ef upp kemur tilfelli um notkun á script á Skjálfta 2 þá er hægt að kalla á admin og hann kemur með útkastara sér við hlið og spyr viðkomandi hvort þetta sem hann er að nota sé ‘hreint radio script’ og ef svarið er ‘NEI’ þá spyr hann hvort þetta sé ‘hreint buy script’ og ef svarið er ‘NEI’, þá þarf admininn ekki að eyða neinum tíma í að hugsa sig um heldur er regglubrjótnum hent hið snarasta út.
Það taka helling af liðum þátt á skjáfta2 og í hverju liði eru fimm einstaklingar sem nota sínar útgáfur af scriptum (sumir engar), það er ekki hægt að láta admina/dómara eltast við einhverjar script deilur allt mótið, þá verður lítið kept á því.
En að halda því fram að banna að nota hitt og þetta í CS er eitthvað meira ‘pro’ en annað er hreinsasta kjaftæði.
Lovarinn AzraeL