Ok.
Mitt unofficialt álit.
Drawviewmodel 0 er bara bull. Þetta eykur þér sýn, tekur blossana og þessháttar. Við erum ekki að spila quake samanber bunnyjumping bannað. Í USA sem við berum okkur helst við þar sem þeir virðast vera mun meira PRO en EU er þessi stilling bönnuð. Nettweak dæmið sem kom upp á CPL HOLLAND er í besta falli mjög óeðlilegt og gefur þér advantage umfram þá sem eru ekki að nota það. Þessi leikur er ekki hugsaður fyrir þá sem vilja tweaka og gera hinar ýmsustu breytingar á visuals í leiknum. Ef þú vilt tweaka leikinn í rassgat þá ferðu bara að spila quake, þar er hægt að gera allan andskotann og ekkert sett út á það. Fyrir mitt leyti er ég á móti eftirtöldum atriðum:
1. Allar breytingar á skinnum/modelum og yfirhöfuð visuals.
2. Hverslags scriptur/aliases sem gera þig fljótari/sneggri en andstæðinginn (nextwish er gott dæmi)
2(a). Buy scripts, það er nægur tími (4-6 sec)til að kaupa það sem þú þarft.
2(b). Crouch Jump script, þetta er hlutur sem gefur þér advantage í of mörgum tilvikum.
2©. Scripts á við select/arm grenade, select/arm/plant c4, svissa frá byssu yfir á hníf og slasha meðan haldið er inni og yfir á byssu þegar sleppt, sem dæmi.
3. Bunnyjumping, ömurlegt að sjá menn nota þetta, farið í quake frekar.
Og margt fleira sem ég nenni ekki að telja upp, þið áttið ykkur á því hvað ég er fara.
Ég endurtek að þetta er mitt prívat og unofficialt álit, ég er ekki að fara neyða ykkur til að hætta nota buy scriptin ykkar, finnst þau bara vera óþarfi.
Spilið leikinn eins og hann kemur úr kúnni, ekki gera breytingar umfram þær sem boðið er upp á í menu systeminu því þannig er hann einfaldlega bestur.
Enn og aftur endurtek ég að þetta er mitt prívat álit og ég spila leikinn svona, ef þið trúið mér ekki þá er ykkur velkomið að sjá þetta hjá mér á mótinu 8. til 10. júní.
Ég er sammála næstum öllu EN ég lít á þetta þannig að allt utanaðkomandi ætti að vera bannað í keppnum EN ég held að allar console skipanir SEM KOMA INNBYGGÐAR með leiknum ættu að vera leyfðar og eru í raun eins sjálfsagðar og að breyta um sensitivity eða nota mouselook. Menu eða console.
Að banna það sem hægt er að gera í SJÁLFUM LEIKNUM er rugl. Þetta eru mín rök og hingað til hefur enginn komið með nein raunveruleg rök gegn þeim. Þú segir að USA virðast mun meira PRO en Evrópa og þar sé þessi stilling bönnuð. Það gengur einfaldlega ekki, það er meira pro að leyfa allar stillingar, þannig getur hver maður aðlagað kerfið að sínum playing style og berum til dæmis saman Q3 og CS, hvor er meira pro? Q3 myndi ég segja og þar eru allar skipanir leyfðar en utanaðkomandi svindl eru að sjálfsögðu bönnuð.
Ég myndi segja að þetta er eitt af því sem gerir Q3 meira pro. Ég vil endurtaka mín helstu rök að það að banna einfalda console skipun er jafn fáránlegt og að banna aðrar skipanir eins og sensitivity sem AÐEINS ER HÆGT AÐ TWEAKA NÁKVÆMT Í CONSOLE. Menu og console, skiptir engu, bara því að hönnuðirnir létu mikilvægustu í menu format.
Og þú nefnir að þessi leikur sé ekki hugsaður fyrir þá sem vilja tweaka. Ég skil ekki rökin sem liggja aftan þessa setningu, hvernig þá ekki? HL er byggður á lagfærðri Q1 vél og er alveg jafn gerður fyrir tweaking eins og Quake.
En eins og ég sagði er ég sammála með allt utanaðkomandi ætti að vera bannað í keppnum og þar á meðal script en það að banna INGAME SKIPUN, SEM VAR >>> GERÐ TIL AÐ CLIENT MEGI NOTA HANA<<<. Það er mesta vitleysa í heimi að banna þannig.
[DCAP]Ravenkettle.id17
0
Come on .. leyfa allar console skipanir .. ein skipun sem tekur burt öll brush sem sjást í gegnum .. t.d. brúin á aztec, ÖLL handrið og tréin á Estate .. þetta er bara ein skipun af fleirri tuga skipana sem gera svipað fáránlega hluti.
Ef þú þarft að nota allar þessar skipanir þá get ég sagt að þú ert ekki neinn pro leikmaður í mínum augum .. ég veit um svo marga leikmenn sem ég myndi kalla PRO sem nota ekkert af þessu .. tökum t.d. Rocco, Blibb, TILT, PraliX .. flestir þessara nota ekki einu sinni buy script .. þetta eru ALVÖRU Pro leikmenn .. þurfa enga hjálp til að geta spilað leikinn ..
Þessi r_drawviewmodel er ekki CS skipun svo þú getur ekki sagt að hönnuður CS setti þessa skipun inn .. þetta er HL skipun .. farðu í manualinn .. þar finnurðu þær skipanir sem fylgja CS sem eru ekki í Menu'inu í leiknum sjálfum ..
“En eins og ég sagði er ég sammála með allt utanaðkomandi ætti að vera bannað í keppnum og þar á meðal script en það að banna INGAME SKIPUN, SEM VAR >>> GERÐ TIL AÐ CLIENT MEGI NOTA HANA<<<.”
Þú veist að það er hægt að búa til öll script í consolinu sjálfu .. eða í öðrum orðum INGAME !!!!!
0
Iss, og vegna þess ætti að vera leyft að búa til ingame script.
Og btw ég nota engin script né neitt annað en default hluti. Ekki buyscript, ekki grenadescript né nein önnur script.
Ég hef aldrei notað r_drawviewmodel 0 né neina aðra console-only skipun fyrir utan adjust_crosshair(Sem ég nota stundum).
Vegna þessa kom ég hingað til að spyrjast fyrir um álit á því að nota þessar skipanir.
Persónulega finnst mér að Valve ættu að diseibla allar fáránlegar skipanir, eins og þú lýsir þeim, ef þeir vildu ekki að þær væru notaðar í CS(Sem seldur er í verslun undir Valve merkinu) og mér finnst það hálf asnalegt að banna eitthvað sem hægt er að gera í leiknum, bara mín skoðun. Ef hönnuðir HL eða CS-gengið væru virkilega á móti þessu ættu þeir að taka ákvörðunina SJÁLFIR og taka þessar skipanir út. Þeir hafa tekið afstöðu gegn bunnyjumping og ætla taka það út, af hverju ættu þeir að leyfa hinar ef þeir væru á móti þeim? Latir, kannski, eða kannski þeim finnst það ekki vera svindl að geta skrifað inn consoleskipanir.
[DCAP]Ravenkettle.id17
- Sem notar ekkert annað en default hluti í CS
0