Mér finnst besta mál að hann byrji að spila aftur, mér finnst samt sem þú ættir að þurfa að sitja amk 2 mánuði frá cs, amk íslenskum cs, ekki víst hægt að banna þér að spila alveg. En uppá framtíðina, ef einhvern tímann aftur vaknar aftur upp sú löngun hjá þér að byrja að haxa aftur, taktu þér smátíma í að hugsa um aðra, hversu mikið fólk hatar að spila móti gaurum sem eru ekki góðir en vilja bæta það upp með svindlum. CS-spilarar sem hafa spilað lengi og eru svo teknir af einhverjum gaur, sem í raun hefur enga löngun í að verða betri í CS. Svindlarar í öllum tölvuleikjum ættu að hugsa sig um, og sleppa öllum svindlum. Það gerir leikina svo endemis leiðinlega og innihaldslausa og tekur frá manni alla löngun til að halda áfram að spila leikinn, farðu á server þar sem hax er leyfilegt og leiktu þér þar eða á móti bottum, ekki “þykjast vera betri” en aðrir með svindli, til að reyna vinna þér inn einhvað orðspor sem góður spilari, sem í raun er hin mesta þversögn.
Þó d0g hafi verið félagi minn og ég spilað lengi með honum, þá “böstaði” ég hann við að svindla og ég auðvita var ekkert að hlífa honum og var ekkert að hylma yfir honum heldur sendi ég bara inn movie sem sannaði mitt mál. Ég vona að hann sé alveg hættur því og ég vona líka að þú sért alveg hættur því líka Mankind. Sama þó þú sért bara að svindla til að leika þér eða fíflast eða þá til að þykjast vera svona “rosalega góður” þá á endanum græðir ENGINN á því.
“… stop hacking, kthxbye! ” - OreO