Sannarlega sárt að heyra að evil sé að taka sér þessa pásu. Fannst samt ekki koma nægilega skýrt fram helstu afrek evil
NOSTAGLÍA IN THE HOLE !!!
Fyrst ætla ég að byrja að rifja upp það fyrsta sem ég man af [.evil.]
Skjálfti 3 | 2001 minnir mig. Evil mætir með 5 lið á Skjálfta, nokkur lið komast ekki á Skjálfta( Hate lið líka) og allt verður soldið brjálað :)
http://www.hugi.is/hl/articles.php?page=view&contentId=322424Jæja, þeir droppa einhverjum 2 liðum út .. en eru samt með met í fjölda spilamanna á Skjálfta :)
–
ICSN málið !
[.evil.] Spilaði auðvitað stóran part í því, enda erum við fræg fyrir að vera alltaf á milli tannana á fólki .. án þess
þó að vera höfuðpaurar; Semi-god sem tók við leyfunum af evil tekur höndum saman við ónefnda pörupilta sem reyndu eftir
mesta megni að koma í veg fyrir það að ónefnt clan ynni þetta frægasta online mót íslands (yet!). Það gekk ekki eftir
og má segja að [.evil.] hafi orðið fyrir miklum skemmdum við þetta athæfi( athugið, evil var þarna búið að brotna í DoA|
þar sem allir ALVÖRU leikmenn héldu). ICSN skandallinn er í mínum augum það skemmtilegasta sem hefur komið fyrir í íslenskri
counter-strike menningu frá upphafi :)
–
[.evil.] fékk ekki að hvíla í friði lengi, því að eftir smá pásu ákvað hinn eitlaharði ^StOrMuR^ að endurstofna evil og sótti ég
mjög hart að því að fá að koma í þetta ÁHRIFARÍKA clan. Ég var samþykktur með 100% Já .. sem að kom mér álíka mikið á óvart og
65% sem Þórólfur borgarstjóri fékk í SMS kosningum á S2 fyrr í kvöld.
MARGT gerðist í [.evil.] á þessum tíma sem ég var í [.evil.] (enda var ég member í næstum 2 ár) og ætla ég núna að stikla á stóru
og tala um það skemmtilegasta.
–
Uppvakning annarra clana.
Auðvitað máttum við ekkert aumt sjá, þó að við hlógum iðullega að því sem var aumara en við, enda evil í húð og hár, en það var um það leyti sem að diG varð til og Love stóð í sárum að við tókum alla Love membera undir okkar vængi og hjálpuðum þeim að komast á rétta hlið .. en fljótlega bættist Hate við líka. Það að hafa verði á næstum því 50 manna only rás er eitthvað sem að ég gleymi aldrei :) Sendum einusinni út 4 scrim-lið í einu og tókum alla Scrim Serverana :)
–
[.evil.]-bitches
Hvernig á maður að tala um evil án þess að minnast á evil bitches ? ^StoRmUr^ sem verður héðan í frá kallaður p1mp-
daddy ákvað að taka af skarið, gera femínistum til geðs og taka inn stelpur í stórum stíl. fyrstar inn,
fyrir utan hana Athenu sem var a) eiginkona eins leaders, b) dóttir annars leaders, c) stóra systir eins members, d)
vinkona p1mp-daddys, voru venuss og Ange|a, sem voru fyrst um sinn titlaðar Skjálfta GRÚPPÍUR en ákváðu að fá
tækifæri til að spila með
stóru(?) strákunum og fylgdi iriz með í kjölfarið. Þær slógu að sjálfsögðu í gegn og hafa þær átt sín móment
eins og þegar iriz náði að teamkilla p1mp-daddy með single skoti úr deagle yfir allt de_dust2 .. skot sem að sjálfur
HeatoN yrði stoltur af, ef skotið hefði farið í hausinn á ÓVINI!
Ákveðinn GOTH-ari, Gimpo$ kom svo eitt kvöld til mín á irc-inu og bað mig um að taka inn vinkonu sína, ZikZak.
2 scrim voru tekin (evil vs evil sem voru algjör BRILL scrim .. lýktist frekar einhverju úr svínasúpunni heldur en
scrimi) og gátum við ekki trúað því að ZikZak væri virkilega að spila, enda með fleirri flögg en p1mp-daddy og
undirritaður samanlaggt. (Ekkert skrýtið, p1mp-daddy var fullur og ég var .. ég) Núna voru actívar stelpur orðnar 4
og langaði okkur að stækka enn við okkur stelpuflotann, enda var evil - only rásin yfirleitt kölluð evil - orgy
FÖRUM EKKI NÁNAR ÚT Í ÞAÐ. 2 stelpur fylgdu svo ZikZak, systur hennar, þær Payne og J1nx, en þær hurfu mjög fljótt
aftur út. Þegar Hill, Bobba_DEE og loksins DangerGirl var komin í liðið þá var kominn tími til að stofna sér deild
fyrir allar stelpurnar. [.evil.]-bitches varð raunin og var strax tekið skarið á Skjálfta. Nánar verður ekki farið út
í hvernig hann fór og það var aldrei planað að ég færi með þeim. Annað er helber lygi :)
Stuttu síðar komu upp rifrildi, activity drapst, rifrildi, fýluköst, nefndi ég rifrildi ? komu upp og [.evil.]-bitches
var svo laggt niður. 2 gellur voru að sjálfsögðu eftir DangerGirl og Athena (enda hún ríflega föst fjölskylduböndum)
og mætti Smurf svo inn til okkar ekki alls fyrir löngu.
[.evil.]-bitches voru sannarlega skemmtilegasti CS - hópur sem til hefur verið .. fyrir utan [.evil.] í heild :)
–
Honorary members.
Ég get næstum því lofað ykkur því að í hverju clani á íslandi er einhver member sem hefur stoppað stutt / langt í [.evil.] og ætla ég að telja upp
nokkra þeirra sem hafa gert það töluvert gott / gert garðinn frægan.
Ace
zenith ( pikacu !!!! (pikachu :)))
Some0ne
SoKKuR
Quest
Indy (ég elska þig, þú veist það :*)
Levi
Plee
amfetamin
Preacher
Willkill4food
evilfart
Hatred
Armani
Zirius
Zicfunka
HelgiM :)
ScarFace
Knievil
Sick0ne
fanyd0j0
kirbir
Folter
pixie
j1nx
payne
brillerinn
damien
giiS
Sickpuppy
droxemin
4Gotten
razter
Pinba||
sparkz
Spartakus (lánshóra með meiru :))
Moe
Kuti
Pudgy
Madox
OrkO
Cobra
Zam
Tigri
og margir margir margir margir margir margir margir margir margir margir margir margir margir margir margir margir í viðbót :)
En jæja, hafði alltaf langað til að skrifa smá sögu af þessu næstumþvíelsta clani íslands með hléum :) vona að þið hafið skemmt ykkur ágætlega við þessa
lesningu :) Hygg ekki á það að gera nákvæmari sögu, en endilega póstið commentum ef þið munið eftir einhverjum.
[.evil.]Topaz.inactve kveðu