Þakka ykkur fyrir, þið hjálpuðuð mér ekki neitt. ég spurði einfalda spurningu enda svoddann newbie. Þið voruð svo uppteknir að rífast að ég hringdi bara nirrí Simnet og fékk hjálp frá þeim. Þetta virkaði að lokum og allt var í lagi. En svo ákvað ég að fá mér fasta Ip tölu og það virkar enn betur eftir það. Djöfull er erfitt að vera nýr í þessu samfélagi þegar allir eru svo uppteknir að dissa ISP, hvorn annann og allt. Simnet menn stóðu sig eins og hetjur. Win2000 vélin sem ég er með hefur verið online í 265 klukkutíma þannig að ekki er neitt við þá að sakast. Ég hef heyrt fleiri slæma hluti um Línu.net heldur en um ADSL Landssímans. Það er bara meiri reynsla af ADSL þannig að maður treystir þeim betur. Pælið samt aðeins í því hvað er erfitt að komast inní þetta samfélag.. maður fær bara skít og drullu til baka.
takk samt.
SW