Ekkert hægt að gera til að ná rás til baka nema biðja einhvern sem er ekki á +hemp (óopinber ircnet plásturinn “frægi” sem kemur í veg fyrir serverOP) um að bíða eftir að ircd.ircnet.is splittst frá servernum hans - hann fari á ykkar rás og bíði eftir að fá server-op :)
En það er ekki auðvelt þar sem frekar margir irc serverar eru komnir með +hemp á sig :).
Og þetta ætti að láta ykkur hugsa 2x áður en þið látið hvern sem er á auto-op :)
Ef einhver er ekki með fasta IP, og er á aop, þá er ekkert mál fyrir hann að breyta identinu sínu og gera take-over.
Frekar biðja einhvern um að lána sér botta og láta hann sjá um opin og kick fyrir mass-deop's því að það er það eina sem þú getur gert á IRCNet til að preventa take-over.
Btw, irc-opar á ircnet eru með þá policy að enginn á neina rás, ef gert er take-over þá er ekkert sem ircopar geta gert í því, ekki neitt! gamesurge og q-net eru hinsvegar með voðalega góða þjónustu í boði: chanserv og S/Q/L-bottana :)<br><br>Kveðja
-Haddi