Kæri MRred og aðrir blesar í [.iRa.]. Það er kannski óviðeigandi að svara slíkum yfirlýsingum, en við munum mæta í gaddaskírlífisbeltum í leikinn við ykkur á morgun. Ennfremur munum við gera allt sem í okkar valdi stendur til að gera ykkur lífið leitt (Awpa í gegnum veggi o.s.fv.). Ef þið standið ykkur vel og leggið okkur af velli, munum við leggja álög á ykkar clan sem mun sökkva enn dýpra í hyldýpi myrkursins og eymdarinnar. Hins vegar ef planið, sem við erum búnir að vera að vinna að í samstarfi við ónefnt besta clan á íslandi, virkar og þið labbið alblóðugir og niðurlútir af leikvelli, tökum við ykkur aftur í sátt og munu samfarir okkar vera góðar.
Við fögnum því að fá að kljást við okkar mann [GGRN]Yuri sem gengur undir aliasnum [.iRA-]MonkeyGirl í ykkar röðum. Við vitum nefnilega hvernig karakter hann spilar og höfum svar við honum. Þú hinsvegar háðungurinn þinn, verður lagður í einelti og 1000 kr. lagt að veði fyrir hvern þann sem tekur þig út (round based). 34.000. kall er heilmikið í lífi húsasmiðs þannig að allir okkar “smiðir” munu gera allt (þá meina ég allt) til að taka þig úr umferð.
Með von um að [Pizza] clanið “ógurlega” falli af himnum (sem skær CS stjarna) á morgun og hugsi sín mál.<br><br>-[GGRN]daXarinn