Ekkert vandamál ..
Tökum bara alla scrim-serverana niður, setjum servervélarnar í aðra leiki til að simnet hafi ennþá meiri nýtingu á vélunum …. hljómar það ekki bara fínt ? Það væri amk mín fyrsta hugsun ef einhver myndi hringja í HEIMASÍMANN! minn og byrja að spjalla um svona mál.
Þið verið að átta ykkur á því að við reynum að gera okkar besta í þessu og reynum eftir fremsta megni að svara, en sumt er bara of fáranlegt til þess að maður svari.
Skal koma með tvö sýnidæmi um hvernig skilaboð geta verið:
Þetta er rétt:
Svindlari á Simnet - Mania, notar nickið “^^^^^” og er með steam id:XXXXXX, ég tók demó, talaðu við mig ef þú villt fá það.
Þetta er rangt:
HEY!!!!“)#(%#)”% FARÐU INN Á SYMNET MANIA OG TJEKKAÐU1 GAUR AÐ HAXA !! LFJÓTUR!)(#%
ARRG! ÞÚ MISSTIR AF HONUM1 DRÍFA SIG FYRR MARR !!!!#%$ ARGH!!#% *spring*
Án gríns, við fáum svona msg's (hef lent í því oftar en einusinni og oftar en tvisvar)
Ef einhver gerir eins og í dæmi a) það þá fer ég hiklaust á server og kíki á málið en í dæmi b) þá er það bara shift og loka glugganum.
Og hvað er að því að senda bara eitt stykki vel orðað e-mail á zlave ? Hann er með völdin til að skoða logga, athuga hvort þetta sé útlendingur eða íslendingur og hvort þetta sé einhver sem er að svindla eða ekki og hann mun ekki ignore-a það þótt að hann svari því ekki! Bara taka það skýrt fram.
Og þótt að við svörum ykkur ekki, þá þýðir það samt ekki að við kíkjum ekki á málið .. fer oft inn á server þó að ég svari ekki gaurnum “OK ! ÉG ER AÐ LEIÐINNI! ” eins og einhver lögreglumaður í svaka hasar.
Vantar fleirri admina? Naah, vantar bara færri thursa sem taka scim-serverunum sem réttindum en ekki fríðindum og leika sér að thursast á honum. Það er að ganga hægt og rólega að sigrast á þeim vanda, enda fá þeir IP-ban á alla simnet server án þess að eiga möguleika að losna úr því.
En það er nóg að gera bara þessi 3 skref:
-Finna admin á IRC(mig, konni, izelord, gaulzi, stormur t.d.):
-Msg-a hann með upplýsingum um server, nick steamID
-loka glugganum.
Meira þarftu ekki að gera, við kíkjum í málið ef að þetta virðist vera alvöru, en 90% af því sem við fáum er rugl! Sem og leiðinlegt málfar, og við erum ekki á launum við að gera þetta og það vantar ekki fleirri til að sjá um þetta, þar sem við gerum allt sem við erum beðnir um svo lengi sem það er ekki rugl!
Og já, ég myndi taka þetta alvarlega með að missa scrim-servera ef þið haldið áfram að hringja í admina!
Sich :)<br><br>Kveðja
-Haddi