Hehe :-)
Þessi umræða er alveg komin út í hött. Þetta er good point hjá þér Cupid, ef [.Hate.] myndi hætta öllu þessu umstangi þá getur vel verið að einhverjir aðrir taki við. Eins og staðan er núna þá erum við að standa fyrir ýmislegum hlutum eins og ICSN mótum og deild. Við erum að gera þetta vegna þess að okkur þykir þetta gaman, við erum ekkert að reyna hygla okkur sjálfum neitt eða koma okkur í einhverja “léttari” riðla, eða jafnvel fá borð sem við “ownum” á. Það er alger vitleysa, eins og Dreitill segir oft, “We're in this for the fun of it!”. Þeir sem hafa staðið bakvið ICSN deildina og ICSN mótið (ekki bara [.Hate.] menn) eiga miklar þakkir skilið fyrir að nenna að standa í þessu. Þetta hefur allt verið sjálfboðavinna og það tekur ótrúlega mikinn tíma og vinnu að koma svona hlutum í kring. Menn hafa einnig verið að taka sér launalaust frí úr vinnu til að standa í þessu. Það er kominn tími til að fólk hætti að væla um hitt og þetta og reyni bara að spila CS og hafa gaman af því!
Eins og hefur oft komið fram þá stóð [.Hate.] ekkert fyrir því hvaða borð var valið í úrslitum á skjálftamótinu. Persónulega finnst mér fínt að fá nýtt borð, de_dust er orðið svolítið þreytt eftir að hafa verið úrslitaborð í öllum mótum sem CS hefur verið spilað á hér á landi.
/rant off
[.Hate.]Icez