ég er fallinn á tíma,
fyrir líf yfirvegað,
eftirlíf óheflað.
finn æsku hverfa úr greipum,
fell dottandi, ég horfi á.
hvert lost yfirsést!
er ekki vinamargur,
ég á kunningja og ættingja
þeir þekkja mig varla í sjón,
heimur þeirra allra lítið grjón.
hvert lost yfirsést!
ég hef enga trú.
aðeins vitneskju um hörund,
um losnun orku og dauða meðvitundar.
og það endar hér, allt endar hér.
Kv.
Mallo
Allar kenningar heimsins…
…og ögn meira.
– Ísland úr NATO –