Elskulegu amlóðar!
Ég tek eftir því að talsverð skrif hafa verið um fréttaflutning [GGRN]Frétta og í raun ekkert nema gott eitt um það að segja. Allar athugasemdir koma sér vel en því miður verður að segjast að megnið af því sem fram hefur komið er gagnslaust með öllu og dæmir sig sjálft.
Ég vil óska 3Gz til hamingju með heimasíðuna sína. Það er alltaf gaman að sjá menn reyna, jafnvel þó af veikum mætti sé, það er ekki aðalatriðið að vera bestur heldur vera með. En því miður er athugasemdin varðandi myndir á heimasíðunni okkar ómarktæk þegar þessir aðilar eru annars vegar. Þeir sem fara á heimasíðu 3Gz skilja hvað ég meina auk þess sem þess verður að geta að myndin af JohnnyBravo er komin frá heiðursmenninu MrRed sem ekki hefur verið staðinn að ósannindum hingað til öfugt við suma.
Og að lokum afar áríðandi tilkynning frá ritstjórninni: Aldrei, og ég undirstrika, aldrei er átt við eldri fréttir. Það var í algjöru, og ég undirstrika, algjöru undantekningartilfelli sem átt var við síðustu frétt. Kerfisstjóri okkar hefur búið svo um hnútana að ekkert er hægt að eiga við eldri fréttir og þetta sjá auðvitað þeir sem lesa fréttasíðuna, við verðum hreinlega að koma með leiðréttingar þegar svo ber undir einsog til dæmis í tengslum við Alla_Iceman/Spaz skandalinn.
-Rooste