Ég veit hvað þig hugsið “ohh enn einn Condition Zero korkur”, en lestu áfram, kannski er þetta merkilegt og kannski er þetta ómerkilegt. En allavega fyrir stuttu var ég á Bretlandi, og stoppaði við í einni búð þar á landi. Og ég tók eftir einu tölvu-blaði, á forsíðu blaðsins var mynd af einum sérsveitamanni í Counter-strike, svo ég ákvað að líta aðeins í það. Þegar ég fór að fletta í geggnum blaðið sá ég auglýsingu, það var verið að auglýsa leikinn Counter-strike : Condition Zero, og þar var tekið fram að leikurinn verður gefinn út 22 ágúst. Þetta er fyrsta sinn sem ég sé þessa dagsetningu. Hvort þið vitið það eða ei þá datt mér bara í hug að skella þessu hérna upp.

Kv. OrkaX

P.s. fyrir forvitna þá heitir blaðið PCZONE