Jamm, ókei. Ég viðurkenni að ég gekk yfir strikið þarna með bögginu í mér og þetta var óþarfi að koma að í þessum pósti en sannleikskorn felst nú samt í orðum mínum. Ég veit hvernig þetta er, enginn má bögga Spaz, Spaz er bestur og Spaz er alltaf svo fyndinn og algjörlega fullkominn gulldrengur. Og þegar einhver andmælir þér eða er á móti þér í einu eða öðru þá er það bara guðlast og bein árás á þig og vini þína. Svoleiðis var það þegar ég byrjaði að spila. Ég var ekki viss um tilgang upprunalega pósts þíns en þú segist í seinna svari(eftir mín svör)hafa verið að spyrjast fyrir hvort aðrir hefðu lent í sama vanda. Allt í lagi, ég skil það og nó problem.
Ég vissi ekki og „veit“ ekki hvernig Doofus hegðaði sér en ég hélt að hann hefði bara andmælt þér í einhverju eða orðið ósammála þér, kannski er það rangt hjá mér og hann er bara fífl og asni. Ef svo er þá var ég of fljótfær og fordómafullur og ég biðst fyrirgefningar.
Og varðandi seinni „Pet“ póstinn, það var stórlega ýkt og gróft grín og ég vona að enginn hafi tekið þann póst alvarlega, ég var bara að svara AnyKey, sem kom með einhvern misskilning inn í umræðuna og ég vona að það hafi ekki móðgað hann.
P.S: Hehe, Armani, því var bara beint til Magga(Serial_Killers) enda átti hann það skilið:-). Og tölvan mín er ekki |D|Server heldur Cow King's Domain, where Kings and Princes battle!!
|D|Ravenkettle<BR
Ég lendi MJÖG OFT í böggi, en mig er svo sem drullusama um það, ég geri OFT grín af því, en þegar menn fara að láta eins og þú gerðir þá er það orðið einum of mikið, þetta var ekki bögg hjá þér, heldur ekkert annað en óþarfa móðganir og leiðindi.
Svo ættirðu ekki að tjá þig mikið um hluti sem þú veist EKKERT um (eins og þú sagðir “Ég vissi ekki og „veit“ ekki hvernig Doofus hegðaði sér”).
Svo þetta:
“Ég vissi ekki og „veit“ ekki hvernig Doofus hegðaði sér en ég hélt að hann hefði bara andmælt þér í einhverju eða orðið ósammála þér”
ég er aðalega að spá í seinni hlutann af þessu, hversu oft hafa menn ekki andmælt mér og verið ósammála, ég tek svoleiðis hlutum alls ekki ílla, það fer MJÖG mikið eftir því HVAÐ er verið að ræða en venjulega met ég skoðun annara og dissa það alls ekki, þeir hafa rétt á sinni skoðun og ég ætla alls ekki að mótmæla henni.
En Ravenkettle .. reyndu aðeins að hugsa áður en þú póstar svona bull aftur, það er ekki erfitt að SPYRJA um málið frekar ÁÐUR en þú ferð að taka stöðu um það.<BR
0
Þú tekur því alltaf illa ef ég bendi á eitthvað sem kemur þér illa. Og af hverju ert þú sá eini sem kvartar undan bögginu í þessum gaur? Kikkaðir þú honum og hættir? Hljómar eins og svona “kick-and-run” barnastælar. Varaðir þú hann við því að óþarfa kjaftsháttur og bögg yrði ekki liðið? Er BANNAÐ að rífa kjaft við aðra gaura á ÍSnet? Stendur “Please do not argue anything about anything here” í server MOTD? Samkvæmt heimildum Weird Al's virðist þetta hafa verið milli þín og kannski nokkurra annarra gegn honum. Ég viðurkenni það fúslega að vita ekki enn allar kringumstæður en þetta hljómar þannig í mínum eyrum. Ennnn annars, Preacher/Helgi has a point. Ég viðurkenni mistök mín hérna og ég vill sættast. Grefur þú stríðsöxina líka?
|D|Ravenkettle<BR
0
Maður þarf rcon til að kicka gaurum .. sem ég er ekki með .. en það var byrjað að vote'a á hann.
En eins og ég sagði, hann var lítið að bögga mig ..
Hvað var það nákvæmlega sem þú bentir á sem kom mér ílla ? eina sem ég sá var að þú byrjaðir að móðga mig útaf ENGRI ástæðu og rífa kjaft ..
Málið er að Weird Al var bara inni 1 af þessum 5 borðum sem ég spilaði með þessum gaur og á þessu eina borði þá tók hann eftir því að þessi gaur var að bögga menn.
Ég VAR búinn að grafa stríðöxina fyrir þetta atvik, ég var byrjaðir að grínast með þér og fíflast .. en svo lengi sem þú hættir þá er ég hættur .. so peace ..<BR
0
Ó, Weird Al sagði nefnilega að þér langaði að kikka honum Doofusi. Hvernig ætlaðirðu að fara að því án RCONS? En það skiptir engu, friður 2000 er kominn í CS:-O.
P.S Ég var ekki að meina neina ábendingu í þessum þræði.<BR
0
Jú, mig langaði að kicka honum, en ég var að reyna að fá suma til að vote'a, sem ég hefði ekki gert hefði ég verið með rcon, þá hefði ég kickað honum eftir að nógu margir voru sammála .. en einhver var að segja eitthvað í rcon say þegar við vorum að spila Cbble og það var ekki ég.
Og þú meinar víst Friður 2001 =]<BR
0