urg, svarið mitt var of langt >:l reyni aftur…
Hér mun ég telja upp og útskýra helstu skipanir sem þið þurfið að kunna fyrir scrim (æfingaleikur, lið á móti liði á ónefndum server)
Til að öðlast rcon (remote console) þarf að skrifa inn þetta command í console!
rcon_password PASSWORD (t.d. rcon_password skrim3)
Ein af helstu skipunu og þeirri mest notuðustu er
rcon sv_restartround 1 (sv_restart 1 virkar líka)
Það sem þetta comman gerir er það að það restarta leiknum, allir respawna, með núll frögs og 0 í deaths og eiga 800kall í pening. EKKI ofnota þetta nema þegar leikur er að fara að hefjast eða þegar annað liðið sérstaklega biður um og alllls ekki ofnota þetta!! Of mikið af restörtum gerir fólk bara pirrað og leiðinlegt!
rcon say
Þetta command lætur serverinn segja einhverja setningu (t.d. “Leikurinn hefst eftir 3 endurræsingar!) en tilgreinir ekki hver sagði það, nema í loggum sem að zlave hefur aðgang að (svo ef þú ert að hugsa um að nota þetta til að rífa kjaft við aðra leikmenn legg ég til að þú hugsir þig tvisvar um!)
rcon changelevel MAPNAME
þetta breytir um kort á skrim servernum.. ekkert meira um það að segja!
þessi þrjú commönd eru hvað mikilvægust þegar á að skrimma móti liðum.
Dæmi um þetta (tekið úr exual scrimmi….. næstum)
”hvaða map á að spila, nenniði að taka de_dust2?"
(þá gerir rcon)
rcon changelevel de_dust2
(bæði liðin eru búin að plana, og segja að þau séu rdy (stendur fyrir ready og þýðir að þau séu tilbúin til að spila !
rcon sv_restart 1
rcon sv_restart 1
rcon sv_restart 5
(núna er leikurinn formlega hafinn, en bara til að gefa það til kynna þá er sagt í rcon say)
rcon say LIVE LIVE LIVE!
núna er scrimmið hafið og ekkert meira sem rcon þarf að gera, nema þegar fyrri hálfleikur er búinn, en þá er hægt að flýta fyrir því að fara afur í sama map með því að skrifa
rcon restart
núna byrjar sama mappið aftur og ekkert meira eiginlega sem að rcon þarf að gera nema endurtaka það sem eftir þrep gera ráð fyrir!
Jæja, núna ættu allir að geta stjórnað sæmilegum leik gegnum remote console, en mæli ég þó með að sá sem að mestu reynslu hefur af því að vera rcon sé einfaldlega alltaf rcon!
copyright… [.evil.]Topaz (unban me #[.evil.] plz :P)<br><br> Spec^
Óli í RL