Ætlið þið labbakútar aldrei að læra?
Þessi umræða hefur svo sem farið fram áður og ég hef ekki heyrt neinn mann svara því af viti hvernig ritskoðun á að geta fúnkerað þannig að eitthvert vit sé í á serverum þar sem verið er að spila drápsleik. Ég tala nú ekki um þegar um er að ræða jólasveina sem ekki einu sinni skilja á milli þegar verið er að móðga þá eða hrósa þeim. Bendi á umræðu sem fram fór hér á Huga fyrir margt löngu og vitna í sjálfan mig (elska að vitna í sjálfan mig):
“Hvaða snillingi datt í hug að reyna að ritskoða servera í leik sem snýst um að murka líftóruna úr andstæðingnum á allan hugsanlegan og óhugsanlegan hátt? Hvaða mannvitsbrekku datt það í hug að hægt væri að betra leikmenn með idjótískum aðferðum á borð við fátæklegan orðabanka sem snýr að því að útiloka barnaleg ensk blótsyrði á borð við fuck en ræður að sjálfsögðu ekki við orð á borð við ”skitaklepri“ eða ”vidbjodur“?”
Sjá nánar:
http://www.hugi.is/hl/greinar.php?grein_id=24220Greyin mín hættiði að reyna að siða aðra til og hafa vit fyrir þeim því svona forræðishyggja og ritskoðun mun alltaf bíta í rassgatið á sjálfu sér!
Kveðja,
<br><br><a href="
http://www.ggrn.org">[GGRN]</a>Rooste