held að MurK séu “þekktari” en ég ef eitthvað er.
Ég breyti um lið ef að liðið sem ég er í hentar mér ekki lengur, alveg eins og að ef leikmaður í e-ð ensku fótboltaliði hentar ekki liðinu lengur þá er hann seldur.
Og MurK eru alltaf heppnir bara :]
Og svona uppá grínið þá skal ég lesa hérna upp mína klansögu:
[-SRT-](boðið í á public!) -> [-ESF-](Sama klan og fyrra, elti Cobra og Tigra) -> N6 (skammlífur samruni XpreZ og ESF) -> R7// (enn og aftur eltandi cobra/tigra) -> [.evil.](evil vantaði gaura sem spiluðu, þarna kynntist ég mörgum snillingum, Willkill,Fart,Stormi,ofl.) -> [-=NeF=-](snoz bauð mér eftir að ég rústði þeim í ICSN :PP) -> SiC (Já legendið sjálft, þetta klan varð til því að SpitSign langaði að spila með kærustunni sinni .. Essence Girl. Hann talaði við mig og ég stal öllu genginu sem þá var í NeF að mestum hluta, Saxus,Shayan,Cyrus og _shock_) -> Drake (SiC hætti útaf ástæðum, ég fór í Drake því að ég þekkti þá marga og þeir eru allir klikkaðír í hausnum sérstklega óskar hlíðberg) -> diG (Drake var svo inactive að ég gat farið að prjóna lopapeysu meðan ég beið eftir skrimmi og diG hljómaði vel) -> Drake (Hlutirnir gengu ekki upp með diG og ég fór aftur í Drake)
WOEOEOEOEOEO Þarmeð er kílómetraævisögu vor lokið.
Drake | Some0ne
"En allaveganna Aldurstakmörk eru oftast til staðar hjá spes klönum eins og [.Love.] þarsem að þetta er meira svona gengi af gaurum sem hittast alltaf í RL og eru alltaf fullir,"
Ágætt someone, alveg hreynt ágætt ;D
En já, það hefur komið fyrir að það séu lön og þá er vanalega bjór við hendina… Að hafa krakka á þeim aldri að foreldrarnir gættu farið að skammast í manni er ekki gott.
Bílpróf er líka plús, því ef einstaklingur er ekki með bílpróf þá leggst viss ábyrgð á klanfélagana.. T.d. ef ekkert reddast að redda tölvuni hans á skjálfta… Redda honum á fund eða heim af honum…
Fyrir utan þetta þá er þetta nottulega þroskastig og að geta kynnst… 13 ára strákur talar um hvað hann á ömurlegan ensku kennara á meðan 18-19 talar um hvað rassinn á ensku kennaranum er flottur…
Einnig eru menn t.d. í Love sem eru að nálgast þrítugt og þó það mundi í sjálfu sér ekki pirra mig neitt mikið að hafa 13 ára gutta kringum mig þá kæmi mér ekki á óvart þú þeim finnst það frekar asnalegt…
Aldursreglur eru oft beygðar til að hleypa inn fólki sem manni lýst vel á… Cs skills, félagsskapur og góður mórall…
En hann er sjaldan beygður um meira en 1-2 ár…
Einnig ef þú þekkir engan innan flestra af þessum gömlu klönum þá kemstu varla þar inn…
Ef gömlu klönin væru þannig þá væru þau ekki til.
Þetta er vinahópar sem kynnast og spila saman, ef þeir mundu hleypa inn einhverjum bara útá cs skills og engin veit hver hann er, svo endar hann með að vera algjört fífl sem tveir gaurar í klaninu þola ekki, og þeir enda með að fara og svo heldur boltinn áfram að rúlla…
= Klönin brotna niður…
Það er ástæða fyrir því að elstu klönin eru ennþá til, þau fara öðruvísi að þessu.
Ég hef t.d. aðeins verið í einu klani síðan ég byrjaði í cs og þá var einn íslenskur server uppi og kannski 10-15 að spila í einu..
Annars bara gl að finna klan, getur reynt aftur síðar…
(wow þetta var langt :P)
0
Já, það var alltaf verið að tala um þennan 17+ ára aldur, það er náttla samræðisaldurinn ;) þannig að það gæti haft e-ð að segja :P
0
Held að clön taki ekki aldurstakmarki ekki svo alvarlega, oft notað til að segjast ekki vilja menn i clanið svona escape frá því að segja sannleikan ;).
En já Some0ne minn kæri vinur yngsti gaurinn i ice er 16 og flestir þar á aldrinum 16-20 :o
og nokkra yfir 20
0
ef þú ert nógu góður kemstu í það clan sem þú vilt ..
0
Ímyndið ykkur ÞETTA : Gaur að nafni -=JaxoN=- (ég er hugmyndalaus) fer inn á ircsíðu eikkers klans og spyr hvort hann megi fá trial.
Nokkrir meðlimir klansins þekkja nafnið hans og vita að hann er góður spilari , flott tp , flott frögg….allur pakkinn. Svo Spyrja þeir hann um aldur og hann lýgur að þeim og segir : “ég er nýorðinn 18 ára” Þeir segja :“Jamm það er kúl bara , hittu okkur á eftir á Dominos og tölum saman betur um etta” Það gera þeir og þegar þeir hitta gaurinn spjalla þeir við hann og dæmi.
Svo viku seinna er hann kominn inn í klanið og allt gott bara þeir keppa á skjálfta og gaurinn bjargar liðinu með feitum fröggum og rosa tp….allt gott meþþa. ALlt i einu áhveður einn eldri meðlimur klansins að fara með lænöppið á djammið. ALlir segja kúl viþþí baram og labba af stað í átt að næsta pöbb…nema hvað að vandræði verða þegar nýji gaurinn sem sagðist vera 18 ára reynir að komast inn. Pabbi hans reynist vera dyravörður þarna og þekkir hann náttla og segir : “reynir! átt þú ekki að vera farinn heim að sofa drengur ? 14 ára krakkar eiga ekki að verað flækjast svona i miðbænum eftir miðnætti!! Komdu þér nú heim !” Gaurarnir í klaninu eru bara “wtf : /” og tala aðeins við hann…….
Næsta dag er honum sparkað úr klaninu og honum sagt að “drullast burt krakki” Gaurinn er alleg miður sín , fer heim til sín og fremur sjálfsmorð fyrir framan fjölskylduna. Þetta er það sem ALDURSTAKMARK gerir ! ekkert nema dráp , sjálfsmorð , dóp , vændi og allskonar sori ! Annars er ég ekkert á móti því….hafði bara ekkert að gera :P
0