Mér finst að þessi ákvörðun hafi verið gerð í fljótfærni og hugsunarleysi …. það sem þeir eru að gera með þessu er að þeir eru að sýna þessum kvörturum í heimana 2 með því að taka þetta frá þeim. Ég veit ekki hvað þeir eru margir, kanski 10-20 mans sem eru verstir, en þetta bitnar á hundruðum manna.
Svo er annað sem þeir hugsa ekki útí, það eru kúnnarnir hjá simnet. Það er bara ein ástæða fyrir því að ég er tengdur simneti, það er til að fá betra ping á serverum. Ef að þetta sé til frambúðar þá er ekki spurning að ég flyt mig yfir á isl til að fá betra ping á serverunum þeirra. Plús að hjá isl er betri linkur til evrópu sem leiðir til þess að maður getur spilað meira þar.
Ég er persónulega hundfúll yfir þessari ákvörðun pimpa, en ég skil allveg að þeir séu sárir útí þessa menn sem eru að rífa kjaft alla daga, en það á bara að taka á því á annan hátt. Ég held að það þekki öll þjónustufyrirtæki svona aðila og þeir höndla þá bara á vissan hátt.