Það er misjafnt hvað er til í Erninum eða Markinu en stundum eru ágætis sett til sölu.
Skiptir samt mestu að settið sé sterkt og brotni ekki á krítískum tímum, en að það hafi endalaust mikið af allskonar lyklum og dóti.
Ég lenti í því að brjóta 5 mm sexkantinn í hjólaferðalagi einhverstaðar í Kaldadal, og eins og flestir vita þá er 5 mm sexkanturinn mest notaður. Man ekki hvernig ég reddaði því, en ég lærði mikilvæga lexíu þarna. Betra að vera með eitthvað basic dót sem virkar ALLTAF en advanced dót sem klikkar stundum.