Þetta hjól er nú bara nokkuð merkilegt og magnað!
Fyrir það fyrsta þá er aftur bremsan bæði víra og vökva… Vír niðrí dæluna og svo tosar vírinn í stimpil í dælunni, vökvi er í sjálfri dælunni.
Og þessi framgaffall er hvílíkt sjaldgæfur í 20"
Hann er smíðaður af AMP sem var vel og lengi með léttasta fully hjólið á markaðinum. Og seldi Mongoose Það lengi umdir merki sínu og síðar Mersedes Bens.
Þetta er mjög skemtilegur og léttur gaffall. einungis óþægilegur í mjög hægum og kröppum beygjum. En mér gekk mjög vel að keppa með hann 96'.
Hugmydin bak við hönnunina er lendingar búnaður flugvéla og þaðan hefur hann þetta undarlega útlit sitt.
Þessi dempari náði þó ekki fótfestu á markaðinum, líklegast veggna þess að það eru gríðalega margir hreyfanlegir hlutir í honum og kom slag í þá nokkuð fljóll og var það erfitt að lage það. Erfitt að skifta um allar plast fóðringarnar í þeim og frekar viðhalds frekir eftir 1 til 2 ára notkunn.
þetta hjól er annars líklegast frá 1994-1996? Og er líklegast eitt fyrsta ef ekki allra fyrsta bmx hjól með fjöðrun og diskabremsu.
Það er ekki fallegt en ég væri þvílikt til í að eiga þennan grip þrátt fyrir það.
Cheers,
Helgi Berg.
www.helgiberg.com