Þetta er samt meira en að segja það, það tekur óhemju mikla vinnu að fá landsvæði til að gera eitthvað svona á nema maður sé heppinn. Síðan þarf maður góðar spýtur í svona dót og þær kosta peninga, yfirleitt ekki eitthvað sem er hægt að redda. Síðan er ekki alltaf betra að vera margir, sérstaklega ekki þegar fólk veit ekki hvað það á að gera, þá eru meiri líkur á að það geri meira vont heldur en gott. Síðan þarf að koma spýtunum á staðinn því ekki eiga allir kerrur og ekki er alltaf hægt að keyra að staðnum sem þarf að byggja á, ég fæ ælu upp í kok bara við að hugsa um spýtur…