Hver kaupir notaða klifur línu og notað sigbelti? er ekki allt í lagi.
Maður veit ekkert í hverju þetta dót hefur lent í eða hvað það hefur verið notað í. Það getur vel verið að það sjáist ekkert á þessu en það sést ekki mikið á línu sem búið er að taka fall af manni. Og það eru ekki mörg föll sem svona línur þola.
Sorrý ég ætlaði ekki að fara að eyðileggja fyrir þér söluna en mér er eiginlega meira annt um að þeir sem eru að byrja í þessu séu ekki að kaupa notað klifurdót.
Það sem maður á ekki að kaupa notað eru:
Carabínur
Línur
Sigtól
Vini
Ísskrúfur
Fleyga
Belti og sigstóla
Og allt sem þú kemur til með að treysta fyrir lífi þínu eða heilsu.
Það er í lagi að kaupa Ísaxir og brodda og eitthvað svoleiðis dót því ef það klikkar þá eru það tryggingarnar sem grípa þig. Og það er undir ykkur komið að velja hvort þið viljið að þetta dót sem þið notið sem tryggingar sé gamalt frá einvherjum öðrum sem þið þekkið ekkert og þið þekkið ekki sögu græjanna sem þið eruð að nota.<br><br>If it aint broken, dont fix it
Gerðu hlutina almennilega eða vertu heima.