Er á G4 Land Rover hjóli, og ætla mér að hjóla 250 Km. Ætla að hjóla þetta þegar fer að líða að sumri. En mig langar að vita hvað maður væri lengi að hjóla þetta á einum degi og hvað væri nauðsynlegt og annað slíkt.
Æfðu þig fyrir þessa ferð. Ég fór 220 km í einum rykk seinasta sumar og var rúmar 10 klst að því. Þetta var allt eftir þjóðvegum og ekkert mál nema seinustu 10 km voru dauði. Vertu bara alltaf með nóg af vatni og eitthvað gott að éta (sem þú ert vanur að éta - ekki éta eitthvað sem þú heldur að sé sniðugt fyrir svona ferð… eins og þurrmat eða e-ð sem er óvenjulegt fyrir þig að éta - þú ælir því bara)
og vertu með bætur. Eina sem ég tek með í svona ferðir eru föt, bætur, vatn og matur. Nenni ekki að klyfja mig með einhverjum varahlutum sem gætu hypathetically komið að notum.
Bætt við 24. febrúar 2009 - 02:43 annars þarftu sennilega alla varahluti í heiminum því ég hef ekki mikla trú á einhverju land rover hjóli:P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..