ATH! taktu þetta sem uppbyggilega gagnrýni en ekki leiðindi ATH!
Úfff, það er leiðinlegt að ferðast en það er ennþá leiðinlegra að horfa á annað fólk ferðast… ég meina, hátt í 4 mín fara í að horfa á mælaborðið í bílnum þínum! Síðan fór að lifna aðeins yfir þessu en það dó fljótlega með myndum af steinhúsum og mjög svo óviðeigandi bjórauglýsingum!
Ég hugsa að þetta myndband sé fínt fyrir ykkur sem fóruð í þessa ferð að horfa á, en fyrir okkur hina þá er þetta ekki spennandi. Maður þarf að hugsa aðeins út í það hvað öðrum finnst áhugavert að horfa á þegar maður er að senda myndbönd á netið, en ekki bara hvað manni sjálfum finnst athyglisvert.