Þá var mission complete! Málið var að sýna og gera meira fyrir þá sem ekki þekkja til en þeirra sem að vita almennilega hvað var í gangi… Þetta var nefnilega fyrst og fremst kynning á íþróttinni og ég held að það hafi tekist vonum framar og í framhaldi af þessu fékk ég mjög spennandi boð sem að verða kynnt þegar nær dregur því út af þessu! Þannig að ég hefði alls ekki viljað breyta þessu mikið. Svona eina sem hefði mátt vera öðruvísi var að það hefði mátt vera 30 sek á milli manna en ekki mínúta í keppninni sjálfri. Og svo hefði ég viljað fá að veita verðlaun fyrir 1,2,3 sæti.