Vetrarhjólreiðar, tómstundir og sterkasti maður Íslands í Perlunni laugardag kl. 13:00 - 15:00
Vetrarhjólreiðar, tómstundir og sterkasti maður Íslands.
Kynnir: Boris, sterkasti maður Íslands
13:00 - 15:00 Vetrarhjólreiðabúnaður kynntur í Perlunni. Verslanirnar Örninn og Markið kynna nagladekk, ljósabúnað og
klæðnað til hjólreiða að vetrarlagi.
13:00 - 15:00 Hálkuþrautabraut á reiðhjólum fyrir utan Perluna. Íslenski fjallahjólaklúbburinn og Landssamtök
hjólreiðamanna sýna og gestir fá að spreyta sig.
13:00 - 15:00 Kajakar frá Kayakklúbb Reykjavíkur í kjallaranum, gestir fá að prófa að setjast um borð.
13:20 - 13:40 Hástökkskeppni á BMX-hjólum. Í ár verður keppt á BMX-reiðhjólum í fyrsta sinn á Ólympíuleikunum í
Kína. Hluti af því er að geta stokkið. Hér keppa BMX-kappar í því að stökkva yfir slá sem hækkar sífellt uns
aðeins einn stendur eftir. Engin dýna og menn verða að lenda á hjólunum.
13:50 - 14:00 Kappakstur kringum Perluna. Hjólreiðakappar úr LHM og ÍFHK etja kappi við hvorn annan. Hjólað verður
hringinn í kringum tankana. Einfaldur gamaldags kappakstur. Sá sem kemur fyrstur í mark vinnur.
14:00 - 14:15 Perlubrunið 9 af fremstu fjallahjólamönnum landsins bruna niður tröppurnar inni í Perlunni á sérstökum
„Downhill“- hjólum með mikilli fjöðrun.
14:00 - 14:10 Kappakstur á vetrarbúnum reiðhjólum í kringum Perluna. Hver er fljótastur hringinn í kringum Perluna?
13:00 - 15:00 RC-bílar í Perlunni, Sigurður Kristinsson og Helgi Már Magnússon sýna sprettharða fjarstýrða rafmagns- og
bensínbíla. Gestir fá að prófa á stórri teppalagðri braut inni í Perlunni. Bensíndrifnir torfærubílar utandyra.
14:45 - 15:00 Boris, sterkasti maður Íslands skorar á viðstadda í aflraunir og gerir við þá samkomulag. Hann veltir stóru
dekki sem tveir og jafnvel þrír menn geta ekki bifað.
Sögusafnið og Veitingasalan opin.
Perlan, Öskjuhlíð.