Við vorum reyndar í 10. sæti í síðasta mánuði í flettingum:
1. Forsíða
2. Kynlíf
3. HL
4. Egó
5. Háhraði
6. Blizzard
7. Hljóðfæri
8. Tilveran
9. Húmor
10. Hjól
Í nóvember vorum við með 3,4% allra flettinga á síðunni.
En í september og október vorum við báða mánuðina í 5. sæti, en það gerir okkur að 4. vinsælasta áhugamálinu á huga þar sem forsíðan er ekki talin sem áhugamál og erum við samt að skáka egó síðunni. Þetta sýnir hversu rosalega vinsæl hjól eru þó að smá niðursveifla sé á því á meðan snjór liggur yfir landinu.
Þetta finnst mér bara nokkuð gott hjá okkur!